Mér var að berast ný yndisleg reynslusaga

Mér var að berast ný yndisleg reynslusaga móður 6 ára drengs sem var á námskeiðinu fyrir 4 – 6 ára.

Það gengur svo miklu, miklu betur en bara fyrir nokkrum mánuðum, áður en námskeiðið byrjaði. Hann er mjög rólegur og virkar svo öruggur og ekki stressaður það hefur verið svolítið hans Akkilesarhæll í svona heimsóknum, að hann var svo spenntur áður en krakkar komu og var svo á massívum yfirsnúningi þegar þau loks mættu – svo geggjað hvað hann er að taka miklum framförum félagslega. Hann er líka búinn að læra betur að hlusta á hin börnin, skiptast á, samþykkja hugmyndir annarra um hvað skuli leika, það var t.d. ekki vandamál þegar vinur hans vildi ekki spila borðspil núna áðan, heldur var sonur minn bara sallarólegur og þeir fundu út úr öðrum leik saman. Það er svolítið stórt.

Námskeiðið hefur reynst okkur mjög vel. Strákurinn minn hefur öðlast meiri ró í félagslegum samskiptum við önnur börn, sem ég tengi beint við PEERS-nálgunina að kenna börnum mjög einfaldar samskiptaaðferðir og endurtaka þær í mörgum mismunandi aðstæðum. Mér finnst ég sjálf líka miklu, miklu betur í stakk búin til að leiðbeina og vera til staðar með drengnum í félagslegum aðstæðum. Ég er mjög spennt fyrir að halda áfram á næsta námskeiði, fyrir 7-9 ára, og hlakka til að læra um aðferðir sem hjálpa stráknum mínum að díla við sífellt flóknari félagslegar aðstæður. Takk fyrir okkur